Umfjöllun: Füchse Berlin - Kiel 24-25 | Hetjuleg barátta Berlínarliðsins ekki nóg Eiríkur Stefán Ásgeirsson í Köln skrifar 26. maí 2012 00:21 Nordic Photos / Getty
Kiel er komið áfram í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir nauman sigur á Füchse Berlin, 25-24, í æsispennandi viðureign. Alexander Petersson átti möguleika á að jafna metin með síðasta skoti leiksins en það fór af varnarmanni og inn. Hann átti samt stórleik, sem og Petr Stochl í markinu, en það dugði ekki til. Filip Jicha var stórbrotinn hjá Kiel sem og Thierry Omeyer í markinu. Þeir sáu um að skila Kiel í úrslitaleikinn, fyrst og fremst. Kiel byrjaði leikinn miklu betur og komust í fimm marka forystu, 8-3, eftir átta mínútna leik. Alfreð stillti upp í gríðarsterka 5-1 vörn sem Füchse Berlin átti erfitt með að vinna bug á. Thierry Omeyer var þar að auki í essinu sínu og varði til að mynda tvö fyrstu víti Berlínarliðsins. Alexander Petersson var í byrjunarliði Füchse Berlin og var nokkrar mínútur að koma sér í takt við leikinn. Hann lét reka sig út af snemma leiks sem hans menn máttu ekki við. Silvio Heinevetter byrjaði í marki Füchse Berlin og þrátt fyrir að hann varði víti á upphafsmínútunum ákvað Dagur að kippa honum af velli og setja Petr Stochl inn á. Það átti eftir að borga sig því Stochl var funheitur og varði gríðarvel. Það lagði grunninn að endurkomu Berlínarliðsins sem náði að minnka muninn í þrjú mörk fyrir lok fyrri hálfleiks, 15-12. Alexander náði, eins og allt lið Füchse Berlin, að koma sér í gang eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn og skoraði hann tvö mörk. Aron Pálmarsson fékk einnig nokkrar mínútur í liði Kiel. Kiel var lengst af skrefi framar í seinni hálfleik en Berlínarliðið var aldrei langt undan. Alexander hélt áfram upptekknum hætti og sá til þess, ásamt Stochl, að halda sínum mönnum á floti. Lærisveinar Dags Sigurðssonar eru þekktir fyrir þrautsegju, eins og sýndi sig í fjórðungsúrslitum keppninnar, og þeir héldu sínu gegn þessu sterka liði Kiel. Þegar um átta mínútur voru eftir náðu Berlín að jafna metin, 23-23, og allt í járnum á lokamínútum leiksins. Alexander skoraði mark í endurkomunni og lagði upp annað. Füchse Berlin fékk tvö tækifæri til að komast yfir en nýtti þau ekki. Kiel endurheimti forystuna með marki Jicha af vítalínunni en Alexander svaraði með sínu sjöunda marki í leiknum þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Hinn ótrúlegi Jicha kom Kiel aftur yfir með langskoti þegar rúm mínúta var eftir. Það var hans ellefta mark í leiknum. Thierry Omeyer varði svo frá Johannes Sellin í horninu og Kiel komst í sókn þegar mínúta var eftir af leiknum.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Enski boltinn Segir Eriksen ekki spila aftur sem atvinnumaður Fótbolti Af hverju vildu Messi og félagar fá Ísland? Fótbolti Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Íslenski boltinn Skotar svara fyrir sig eftir norskar ásakanir um svikin loforð Fótbolti Á HM eftir „grófa“ leiki með KR í Bestu deildinni Fótbolti Tuchel næstum tekinn við Íslendingaliði Fótbolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira